Monday, 31.05.10

Ég óskaði þess

að formenn og frambjóðendur flokkanna hefðu fengið þau skilaboð sem þeim var ætlað.
En svo var víst ekki.
Það viðhorf sem að Hanna Birna og Dagur B. Eggertsson sýndu þegar þau mættu í flokkspartýið sitt eftir að fyrstu tölur voru gefnar er ástæðan fyrir því að "Besti" flokkurinn fékk allt þetta fylgi.
"Stórsigur, Sjálfstæðisflokkurinn í fullri sókn". - HannaBirna, eftir að sjálfstæðisflokkurinn missti tvo borgarfulltrúa.
"Sýnir að borgarbúar treysta Samfylkingunni blabla" - Dagur, eftir að Samfylkingin missir einn borgarfulltrúa (og er bara með 3 af 15, allt þetta traust).

Flokkarnir eiga auðvitað sinn hluta af dyggu stuðningsfólki.

En þegar nýtt framboð, með stefnuleysuna "áfram allskonar" er orðinn stærsti flokkurinn í Reykjavík, þá hefði maður haldið (vonað) að flokkarnir myndu taka þetta til sín.
En nei, fyrir kosningar þá treystu þessir einstaklingar á að fólk myndi segja eitt í könnunum og annað í kjörklefa.
Hvernig hefði verið að sýna smá æðruleysi og eftirsjá, en ekki láta ykkur detta það í hug að borgarbúar treysti ykkur eða styðji í áframhaldandi vitleysu.
Hvernig væri ef að þeir einstaklingar sem voru mest strikaðir út af sínum listum myndu hafa það í sér og segja af sér strax. (Gísli Marteinn, Dagur B, Sóley). Takið þessi skilaboð til ykkar!

Þetta viðhorf sem að framlínusveit flokkanna sýndi kosningarkvöldið og eftir kosningar, er viðhorfið sem að borgarbúar eru orðnir þreyttir á og vilja losna við. Þetta er ástæðan fyrir því að Jón Gnarr er með stærsta flokkinn í Reykjavík.

Hvernig væri að t.d.allir þeir einstaklingar sem hafa setið meira en eitt kjörtímabil sem borgarfulltrúi myndi bara segja af sér, og að "nýtt" lið myndi fá að láta ljós sitt skína. Það er svo kjósanda að velja hvort að ljósið fái að vera kveikt eða slökkt.

Ég er orðinn nett pirraður á þeim einstaklingum sem hafa pólitík af atvinnu. Hræsni og hroki er það sem einkennir þeirra framkomu og störf. Setja ætti lögbann á að þessir einstaklingar fengju að halda áfram í pólitík, og lög um hversu lengi einstaklingar mættu sitja í á Alþingi eða í borg eða bæ.



Natti - pencil 02:16:11 - pencil permalink -

Friday, 30.04.10

Er boðskapur í barnabókum? Og kemst hann til skila?

Pétur hittir Svart og BjartÉg lofaði Andra að lesa fyrir hann fyrir svefninn, ef hann myndi finna til bók.
Hann valdi bókina "Pétur hittir Svart og Bjart".
Á heimasíðu Bókasafns Kópavogs fellur þessi bók undir flokkinn "Bækur um einelti".

Ég veit að t.d. Grímsævintýri hafa ekki góðan "boðskap", en er önnur hver barnabók með fáránlegan boðskap?

Þessi bók, fjallar um að ný (svört) stelpa byrjar í bekknum hjá Pétri, og Pétur lendir svo í einelti af "Svart og Bjart".
Og boðskapur bókarinnar: Það er best að takast ekki á við einelti, og alls ekki segja fráþví, því það gerir illt verra.
Ný orð sem börn læra við lestur bókarinnar, "bleiknebbi", þegar Anna kallar Pétur það. (Annar er jú svört en Pétur "fölur")

Það vill semsagt enginn vera meðþeim sem að Svartur og Bjartur "taka fyrir" og verða því að "leika sér einir". Pétur er laminn, taskan hans tæmd og bókunum hans hent útum allt.
"Pétur sagði ekki neitt. Hann þorði það ekki."
Um kvöldið er svo Anna tekin og bundin við tré í almenningsgarði og skilin eftir.
Pétur heyrir grátinn inn um gluggann og fer út og nær að frelsa hana áður en Svartur og Bjartur koma aftur. Og fara þau í kjölfarið heim til Péturs og mamma hans spyr önnu: "'Hver hefur verið vondur við þig?' Hvorki Pétur né Anna svöruðu því. Þau vildu ekki klaga. Ekki vildu þau gera mál úr þessu í skólanum á morgun? [...] Þá hefðu Svartur og Bjartur aldrei látuð Pétur og Önnu í friði."

Bæði tónlistarefni og kvikmyndir eru skilgreindar eftir flokkum hvort efnið sé hæft börnum.
Er svona efni hæft börnum?

Nógu mörg eineltismál eru í gangi fyrir,að maður sé ekki að kenna börnunum að það eigi ekki að segja frá þeim.

Natti - pencil 12:51:40 - pencil permalink -

Fyrirfram ákveðin afstaða

Nú virðast allir [lesist: borgarahreyfingin og moggabloggarar] keppast um að fordæma aðgerðir lögreglu í dag.
Látum okkur nú sjá. Nokkrir "stuðningsmenn" sakborninga mættu í Héraðsdóm með flugelda.
Hluti af þessum "stuðningsmönnum" neituðu svo að framfylgja þeim reglum sem eru settar í dómssal. Þá var kallað á lögreglu til að fjarlægja þessa einstaklinga úr dómssal. Þessir einstaklingar neita að framfylgja boðum lögreglu um að víkja úr dómssal, og kemur því til stimpinga milli lögreglu og stuðningsmanna, því það þurfti að fjarlægja þá með valdi vegna þess að þeir vildu ekki fara með góðu.

Úr fréttayfirlýsingu Borgarahreyfingarinnar: "Fjölmennur hópur lögreglumanna var í dómshúsinu og réðist gegn almenningi á staðnum án nokkurrar ástæðu."
Þetta hljómar eins og lögreglan hafi mætt  óspurð í dómssal og ákveðið upp á sitt einsdæmi að vera með leiðindi.
Athugaverð afstaða þegar horft er til þess að það var kallað á lögreglu vegna þess að stuðningsmenn voru með leiðindi, en ekki öfugt.

og meira úr þessari ályktun: "Svo virðist sem ofbeldisleikrit hafi verið sett á svið í samráði við lögregluyfirvöld og vekur það spurningar um atburðina í alþingishúsinu sem ákæran snýst um"

Það virðist frekar vera sem svo að þetta "leikrit" hafi þá verið skipulagt af stuðningsmönnum og Borgarahreyfingunni, að staðsetja nokkra einstaklinga í dómssal til að vera með leiðindi með þeim tilgangi að ögra lögreglu.

Það er ekki til að auka traust á Borgarahreyfingunni þegar fordæming þeirra byggist á öfugri atburgðarrás.

Lögregla var kölluð til, og sinnti starfi sínu.

Einstaklingar sem mæta í héraðsdóm með flugelda eða neita að framfylgja reglum í dómssal eru ekki þarna í þeim tilgangi að vera með "ró og spekt".
Fávitar

Natti - pencil 08:08:12 - pencil permalink -

Saturday, 03.04.10

Lægsti samnefnarinn

Það hefur oft verið sagt um jafnaðarmenn að þeirra hugmynd að jöfnuði sé að finna lægsta samnefnarann og miða allt út frá honum. Því það sé náttúrulega út í hött að reyna að bæta það sem lélegast er, auðveldara að draga allt annað niður á sama plan.

Nýjsta dæmið um slíkt er nýja fjölmiðlafrumvarpið sem var flutt af mennta- og menningarmálaráðherra Katrínu Jakobsdóttur í mars.

En þar kemur fram, svo ég vitni nú orðrétt í frumvarpið:
Fjölmiðlaþjónustuveitendur sem miðla myndefni í línulegri dagskrá skulu kosta kapps um að meiri hluta útsendingartíma sé varið í dagskrárefni frá Evrópu. Með útsendingartíma er í þessu sambandi átt við heildarútsendingartíma að frádregnum þeim tíma sem varið er til frétta, íþróttaviðburða, leikja, auglýsinga, textavarpsþjónustu og fjarsölu.
    Fjölmiðlaþjónustuveitendur sem miðla myndefni eftir pöntun skulu eftir því sem unnt er tryggja með viðeigandi aðferðum að evrópskt efni sé áberandi hluti af framboði þeirra.

Hugmyndin hérna, fyrir utan marxíst hugarfar, er að það gengur náttúrulega ekki að það finnist aðrir miðlar sem geti mögulega verið skemmtilegri en ríkissjónvarpið. Og því skal Derrick væða alla aðra sjónvarpsmiðla.

En að öllu gamni sleppt, þá er verður semsagt stofnuð "Fjölmiðlastofa" sem á að hafa eftirlit með dagskrágerð fjölmiðla, og passa upp á að fjölmiðlar bjóði upp á "rétta" dagskrá, og að hlutfall "réttrar" dagskrár sé við lýði.
Fyrsta skrefið í átt að kommúnískrar ritskoðunar. Grundvöllurinn lagður.
Natti - pencil 14:00:05 - pencil permalink -

Wednesday, 10.03.10

Kaupaukar og bónusar.

Ég er löngu hættur að skilja á hvaða forsendum kaupaukar og bónusar eru greiddir. Hélt í blindni að það væri e-ð tengt því að fyrirtæki gengu vel og skiluðu hagnaði. Ekki að eyða 2.5 milljörðum í bónusa þegar fyrirtækið er rekið með 49 milljarða tapi, og 5 sinnum meira tapið árið á undan.

http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2010/03/10/fa_kaupauka_thratt_fyrir_tap/

Finnst enn verra að fréttin kemur ekki einusinni á óvart, því sambærilegar fréttir hafa komið reglulega síðustu 12-15 mánuði af fyrirtækjum í fjármálageiranum.

Mér finnst hinsvegar í fínu lagi að bónusar o.þ.h. séu greiddir út hjá fyrirtækjum sem skila hagnaði í raun og eru að blómstra núna (fiskvinnsla t.d....)

Bleh, veit ekki hvenær þetta hættir að fara í taugarnar á mér.


Natti - pencil 01:53:14 - pencil permalink -

Older articles:

06.03.2010

13.02.2010

31.01.2010

22.01.2010

15.08.2009

12.08.2009

20.07.2009

31.05.2009

21.05.2009