Ef að dýr gætu tjáð sig ...

MyrraÉg er búinn að vera að horfa á Animal Rescue SPCA þætti Animal Planet og svona aðeins verið að pæla.

Þegar við, mannskepnan, verður veik eða e-ð að, þá er okkar lífsvilji virtur. Og jafnvel þó svo að við viljum deyja og erum haldin sjúkdómi þannig að við getum ekki hreyft okkur né tjáð okkur, þá er okkur haldið á lífi gegn okkar vilja. Lítið um líknardráp í heiminum.

En hvernig er þetta með dýrin? Það er t.d. ekki mikill lífsvilji í hestum, og ef eitthvað kemur fyrir þá þá eru þeir oftar en ekki aflífaðir þó að manni finnist að það mætti vera hægt að gera meira. Ef að dýr eru grimm, þá eru þau aflífuð. Ef að dýr bitur mann, þá er það aflífað. Ef að dýr verður alvarlega veikt, þá er það aflífað. Ef að dýr missir útlim, þá er það (oft) aflífað. Ef að þetta er húsdýr og viðkomandi eigandi vill ekki eiga það lengur, þá er það svæft. Ef að bóndi tekur hreindýr í fóstur án leyfis Umhverfisstofnunar, þá er hótað að aflífa það nema að réttir pappírar/umsóknir séu til staðar. (Ekki að dýrið sé sótt og gefið frelsi eða neitt þannig.)

Ef þetta væri yfirfært yfir á okkur?
Manneskja greinist með krabbamein. Þá yrði hún drepin.
Manneskja greinist með MS eða parkisons. Þá yrði hún drepin.
Manneskja missir fleiri en einn útlim. Þá yrði hún drepin.
Manneskja verður alvarlega veik í marga daga. Þá er eflaust skynsamlegast að drepa hana bara.
Ef að lítið barn myndi finnast og einhver hjón myndi bjarga því, þá myndi félagsmálaeftirlitið hóta að drepa barnið í staðinn fyrir að ná í það og hlúa að því. Nema að hjónin gætu sýnt fram á rétta pappíra.
Allir sem verða dæmdir fyrir líkamsárás yrðu líflátnir. (Er það ekki þannig með hunda og flest önnur dýr? Ef þau ráðast á manneskju þá endar það á svæfingu?)
Og auðvitað allir sem eru dæmdir fyrir alvarlegri glæpi, þá yrðu þeir einnig líflátnir.
Þeir sem myndu ekki vilja eiga börnin sín, myndu í staðinn fyrir að ættleiða þau frá sér eða jafnvel bara ala þau illa upp, þá væri hægt að fara með þau og láta bara svæfa þau.

Ótrúlegt hvernig það virðist vera í lagi að svæfa dýr útaf allskonar ástæðum, en líknardráp er bannað á flestum stöðum í heiminum.
Hafa dýrin engan rétt?

Natti - clock 21:32:03 - Thursday, 21.05.09 - pencil permalink