Ég óskaði þess

að formenn og frambjóðendur flokkanna hefðu fengið þau skilaboð sem þeim var ætlað.
En svo var víst ekki.
Það viðhorf sem að Hanna Birna og Dagur B. Eggertsson sýndu þegar þau mættu í flokkspartýið sitt eftir að fyrstu tölur voru gefnar er ástæðan fyrir því að "Besti" flokkurinn fékk allt þetta fylgi.
"Stórsigur, Sjálfstæðisflokkurinn í fullri sókn". - HannaBirna, eftir að sjálfstæðisflokkurinn missti tvo borgarfulltrúa.
"Sýnir að borgarbúar treysta Samfylkingunni blabla" - Dagur, eftir að Samfylkingin missir einn borgarfulltrúa (og er bara með 3 af 15, allt þetta traust).

Flokkarnir eiga auðvitað sinn hluta af dyggu stuðningsfólki.

En þegar nýtt framboð, með stefnuleysuna "áfram allskonar" er orðinn stærsti flokkurinn í Reykjavík, þá hefði maður haldið (vonað) að flokkarnir myndu taka þetta til sín.
En nei, fyrir kosningar þá treystu þessir einstaklingar á að fólk myndi segja eitt í könnunum og annað í kjörklefa.
Hvernig hefði verið að sýna smá æðruleysi og eftirsjá, en ekki láta ykkur detta það í hug að borgarbúar treysti ykkur eða styðji í áframhaldandi vitleysu.
Hvernig væri ef að þeir einstaklingar sem voru mest strikaðir út af sínum listum myndu hafa það í sér og segja af sér strax. (Gísli Marteinn, Dagur B, Sóley). Takið þessi skilaboð til ykkar!

Þetta viðhorf sem að framlínusveit flokkanna sýndi kosningarkvöldið og eftir kosningar, er viðhorfið sem að borgarbúar eru orðnir þreyttir á og vilja losna við. Þetta er ástæðan fyrir því að Jón Gnarr er með stærsta flokkinn í Reykjavík.

Hvernig væri að t.d.allir þeir einstaklingar sem hafa setið meira en eitt kjörtímabil sem borgarfulltrúi myndi bara segja af sér, og að "nýtt" lið myndi fá að láta ljós sitt skína. Það er svo kjósanda að velja hvort að ljósið fái að vera kveikt eða slökkt.

Ég er orðinn nett pirraður á þeim einstaklingum sem hafa pólitík af atvinnu. Hræsni og hroki er það sem einkennir þeirra framkomu og störf. Setja ætti lögbann á að þessir einstaklingar fengju að halda áfram í pólitík, og lög um hversu lengi einstaklingar mættu sitja í á Alþingi eða í borg eða bæ.



Natti - clock 02:16:11 - Monday, 31.05.10 - pencil permalink