Gleðilegt sumar, bless vor eða vetur?

BlómÁ morgun, 23 apríl, er sumardagurinn fyrsti.
Þá er nú ýmislegt að gerast. Kannski minni þáttaka vegna veðurs, en whatever.
Í dag, 22 apríl, er þá síðasti vetrardagur.

Hvenær er þá vorið?
Það vantar eitthvað upp á þessa jöfnu.

Skiptir kannski engu máli fyrst það er rigning allt árið um kring, og stundum haglél í júlí.

Ég fór á xhvad.is til að athuga hvað ég ætti að kjósa.
Niðurstöðurnar komu ekki á óvart, enda veit ég svosem alveg hvar ég stend hugmyndafræðilega séð. Eða svona nokkurnveginn.
Vandamálið er að ég treysti ekki fólki sem er í framboði.

Ef ég horfi á "hina" flokkana, þá hvorki er ég sammála hugmyndafræðinni, né treysti því fólki heldur. Ætli ég verði ekki að nota útlokunaraðferðina.

Natti - clock 13:09:22 - Wednesday, 22.04.09 - pencil permalink