Hetja dagsins
Ég er svo mikil hetja að það hálfa væri alltof lítið því ég gæti pottþétt gert betur.
Eftir smá tiltekt í geymslunni rakst ég á línuskautana sem ég fékk að láni frá pabba snemma á þessari öld.
Ég varð nú að prufa, enda er ekkert mál að renna á línuskautum.
NOT!
Fyrir utan hvað það er erfitt fyrir líkama og sál að vera alveg við það að detta í hálftíma, þá var ég búinn að steingleyma hversskonar álag línuskautar setja á fótleggi og bak. Shees.
En ég prufaði þó, sko mig.
Nú óska ég bara eftir einhverjum sem er tilbúin(nn) til að detta með mér í sumar á línuskautum. Any takers?
18:29:59 - Sunday, 03.05.09 -