Í nafni femínisma.
Frétt tekin af mbl.is:
"Sextán konur og átta karlmenn, sem voru handtekin utan við klámklúbb í miðborg Stokkhólms í nótt, voru enn í haldi lögreglu undir kvöld, grunuð um alvarlega líkamsárás. Fólkið er talið hafa ráðist á gesti sem komu út af staðnum og barið þá m.a. með hafnaboltakylfum, tómum flöskum og pokum fullum af grjóti.
Lögregla var kölluð að Club Privé við Birger Jarlsgatan í miðborginni klukkan 5 í nótt. Þrír þeirra, sem fyrir árásinni urðu, voru fluttir á sjúkrahús en áverkar þeirra reyndust ekki alvarlegir.
Meðal þeirra sem handteknir voru eru sex 17 ára gamlar stúlkur. Fólkið er félagar í samtökunum Feministas, sem tengist sænska Jafnaðarmannaflokknum. Samtökin hafa áður verið með aðgerðir gegn þessum klúbbi.
Fólk, sem tók þátt í aðgerðunum, en var ekki handtekið, hefur sagt við sænska fjölmiðla í dag, að átökin hafi byrjað þegar dyraverðir hafi reynt að draga konur í hópnum inn í klúbbinn og mótmælendur reyndu að verjast því."
Er ekki í lagi?
1) Styður Salvör & Co svona aðför að gestum "klámklúbba" ?
2) Þessir ofsatrúahópar innan femínista, sbr Salvör&Co hérlendis, gera það sama fyrir feminisma og Osama bin Laden gerir fyrir múslima og múslimatrú.
3) Að "átökin hafi byrjað þegar dyraverðir hafi reynt að draga konur í hópnum inn í klúbbinn og mótmælendur reyndu að verjast því" er út í hött. Hverjar eru líkurnar á því að dyraverðirnir hafi ráðist á fólkið í þeim tilgangi að draga það inn. Og afhverju vildi svo "heppilega" til að hópurinn var vopnaður með hafnaboltakylfum og fl. þegar átökin brutust út?
Drasl.
20:21:52 - Saturday, 07.05.05 -