Lægsti samnefnarinn

Það hefur oft verið sagt um jafnaðarmenn að þeirra hugmynd að jöfnuði sé að finna lægsta samnefnarann og miða allt út frá honum. Því það sé náttúrulega út í hött að reyna að bæta það sem lélegast er, auðveldara að draga allt annað niður á sama plan.

Nýjsta dæmið um slíkt er nýja fjölmiðlafrumvarpið sem var flutt af mennta- og menningarmálaráðherra Katrínu Jakobsdóttur í mars.

En þar kemur fram, svo ég vitni nú orðrétt í frumvarpið:
Fjölmiðlaþjónustuveitendur sem miðla myndefni í línulegri dagskrá skulu kosta kapps um að meiri hluta útsendingartíma sé varið í dagskrárefni frá Evrópu. Með útsendingartíma er í þessu sambandi átt við heildarútsendingartíma að frádregnum þeim tíma sem varið er til frétta, íþróttaviðburða, leikja, auglýsinga, textavarpsþjónustu og fjarsölu.
    Fjölmiðlaþjónustuveitendur sem miðla myndefni eftir pöntun skulu eftir því sem unnt er tryggja með viðeigandi aðferðum að evrópskt efni sé áberandi hluti af framboði þeirra.

Hugmyndin hérna, fyrir utan marxíst hugarfar, er að það gengur náttúrulega ekki að það finnist aðrir miðlar sem geti mögulega verið skemmtilegri en ríkissjónvarpið. Og því skal Derrick væða alla aðra sjónvarpsmiðla.

En að öllu gamni sleppt, þá er verður semsagt stofnuð "Fjölmiðlastofa" sem á að hafa eftirlit með dagskrágerð fjölmiðla, og passa upp á að fjölmiðlar bjóði upp á "rétta" dagskrá, og að hlutfall "réttrar" dagskrár sé við lýði.
Fyrsta skrefið í átt að kommúnískrar ritskoðunar. Grundvöllurinn lagður.
Natti - clock 14:00:05 - Saturday, 03.04.10 - pencil permalink