Neysla...

Ég tók þá ákvörðun síðustu helgi að kötta aftur á kókneysluna mína. Hef oft hætt áður, svona eins og reykingarfólkið, og svo byrjað aftur. Svona eins og þegar reykingarfólk fellur með því að fá sér bara smók á djamminu, og svo bara rettu á djamminu, og svo bara pakka á djamminu... og voila. Þá hef ég byrjað aftur með því að fá mér eitt glas þegar farið er út borða. Og svo eitt glas með góðum mat. Og svo eitt glas með mat. Og svo fleiri glös með mat. Og áðuren ég veit af þá er þetta í lítratali.

Ég ákvað s.s s.l. helgi að reyna að hætta þessu. Og ákvað í fyrsta skrefi að minnka þetta um 70-80% og fara niður í hámark hálfan líter á dag til að byrja með, og svo sjá til með framhaldið. Vatnsneyslan hefur aukist á móti, sem er gott.

En þetta hefur eitt áhugavert side-effect. Um leið og þessi ákvörðun var tekin, þá fór kók og pepsi (coladrykkir) úr því að vera alltílagi á bragðið yfir í að vera ÆÐISLEGIR á bragðið.
Kalt kók hefur aldrei verið jafn gott og eftir að ég ákvað að hætta að drekka það.
Markmið: Alveg hættur fyrir lok sumarsins... Að drekka kóladrykki. Get fengið aðra gosdrykki sem undantekningar...

Natti - clock 21:57:59 - Monday, 20.07.09 - pencil permalink