Today
Svona til að hafa eitthvað á jákvæðu nótunum líka.
Vaknaði alltof snemma, teppið tekið til, bakarísferð og allt gert ready fyrir picnik.
Skruppum í Hvalfjörðinn í sólina þar sem við borðuðum nesti og svona. Og Vala óð í á. Gott gaman.
Fór svo á krepputorg í hoppikastalaland. Tvennt mjög áhugavert þar.
Fyrsta er, að fullorðnir mega hoppa líka. Ég myndi segja að ég hefði ekki látið segja mér það tvisvar, en það er akkurat það sem gerðist. Því ég trúði því ekki í fyrra skiptið þannig að ég spurði aftur.
Eftir seinna jáið þá tók við klukkutími af litlum börnum og stórum Jónatan að hoppa um í loftkastalagarðinum og klifra upp og renna sér niður í allskonar hoppiköstulum.
Awesome.
Seinna, það kostar semsagt 800kr inn fyrir börn, en frítt fyrir fullorðna. Því það er ætlast til að forráðamenn fylgist með börnunum sínum.
Það er boðið upp á að halda afmælið þarna, og þá eru tvö verð í gangi:
1000kr PER BARN ef að engar veitingar eru innifaldar, en þú mátt koma með þínar eigin.
1500kr PER BARN ef að veitingar eru innifaldar.
Semsagt, ef að ég "panta" staðinn með fyrirvara fyrir barnaafmæli handa fimmtán(15) krökkum, þá er þetta díllinn sem ég fæ:
1. Ég má mæta með veitingar til að krakkarnir geti borðað eitthvað. (Í staðinn fyrir að fara með börnin annað að borða.)
2. Ég fæ ekki staðinn útaf fyrir mig.
3. Vegna þess að ég pantaði með fyrirvara og tryggði staðnum innkomu fyrir átta(
krakka, þá borga ég tvö hundruð (200) krónur aukalega PER BARN.
3.1 Hold that thought. Fær maður ekki magnafslátt(nei).
Ok, ég skil að maður vilji kannski bara hafa þetta einfalt og halda afmælið og matinn á einum stað. En fyrir 15 krakka þá borga ég þrjú þúsund (3000) krónur aukalega bara fyrir það eitt að krakkarnir MEGA borða þarna. Svo eru veitingarnar eftir.
Betra væri að mæta með allan hópinn án þess að láta vita á undan, og spara mér 3000kr, og borða annarsstaðar.
Kjánalegur díll, minnir mig á sniglatilboðið á bjór.
1 á 300.
2 á 500
3 á 1000
Ótrúlegt nokk þá eru þónokkrir sem taka "fá þrjá á þúsund" eftir að hafa drukkið nokkra...

21:54:10 - Thursday, 21.05.09 -