Út að borða
Helgin var frábær. Rólegheit, útaðborða og bíó.
Á laugardeginum fórum við Vala, Maggi&Unnur og Gunni&Ásta út að borða á Grillhúsi Guðmundar, og svo í bíó á Sherlock Holmes.
Myndin er ágætis afþreying, félagsskapurinn awesome. En ekki verður sömu sögu að segja um Grillhúsið á Tryggvagötu.
Á helgarmatseðlinum var nautasteik með sósu, kartöflum og salati, ég var alveg til í nautasteik.
Svo fylgdi líka súpa dagsins með.
Súpa dagsins var gamalt soð með sveppum í og kallaðist sveppasúpa.
Með mínum einstöku hæfileikum tókst mér að taka lokið af súpupottinum og setja á bólakaf í súpunni.
En kjötið, meina, hversu mikið er hægt að klúðra kjöti? Það er hægt að ofelda það.
Ég er ekki viss um að það hafi verið gert í þessu tilfelli. Það leit út fyrir að vera pínu rautt í miðju, en bragðið.... bragðið var viiiðbjóðslegt. Ég er ekki einusinni viss um að þetta hafi verið nautakjöt. Ég þurfti að athuga nokkrum sinnum hvernig þetta hafði verið eldað, því það fyrsta sem mér datt í hug var að kjötið hefði verið grillað í svona 36 tíma, og svo hefði einhver tekið sprautu með blóði og sprautað inn í miðjuna til að láta líta út fyrir að það væri medium-rare.
En eftiráaðhyggja, þá grunar mig að kjötið hafi runnið út einhverntíman í byrjun árs 2008, og verið í frysti síðan þá, fengið svo að þiðna i eina viku þar til ég fékk það á diskinn minn.
Við erum að tala um að ég notaði dijon sinnepið sem er á borðinu til þess að bragðbæta kjötið til þess að koma því ofanímig.
HVER NOTAR DIJON SINNEP Á KJÖT?! Ég, þegar kjötið er myglað.
Gef grillhúsinu mínus-þrjár-stjörnur.
En í gær fórum við Vala út að borða á Scandinavian á Laugavegi 24.
Það var frábært.
Djúpsteiktur camelbert og hvítlauksristaðir humarhalar í forrétt. Kjúklingaeitthvað og Surf&Turf í aðalrétt. Og svo súkkulaði og eplakökur í eftirrétt.
Þjónustan var skemmtileg.
Forrétturinn var frábær.
Aðalrétturinn var líka frábær.
Eftirrétturinn var "lala". Skv völu þá hefði alveg mátt hita frönsku súkkulaði kökuna aðeins betur. En svoleiðis á að vera borið fram volgt, ekki kalt. Eplakakan var líka "lala". Hef bæði fengið verra og betra.
Mæli með að sleppa bara eftirréttunum, og þá fer maður massa sáttur þarna út.
Gef Scandinavian "ég væri til í að koma aftur þangað og borða, og myndi mæla með staðnum" margar stjörnur.
Næst: Hoppa og skoppa út vikuna til að ná af mér matnum sem var borðaður um helgina.
Á laugardeginum fórum við Vala, Maggi&Unnur og Gunni&Ásta út að borða á Grillhúsi Guðmundar, og svo í bíó á Sherlock Holmes.
Myndin er ágætis afþreying, félagsskapurinn awesome. En ekki verður sömu sögu að segja um Grillhúsið á Tryggvagötu.
Á helgarmatseðlinum var nautasteik með sósu, kartöflum og salati, ég var alveg til í nautasteik.
Svo fylgdi líka súpa dagsins með.
Súpa dagsins var gamalt soð með sveppum í og kallaðist sveppasúpa.
Með mínum einstöku hæfileikum tókst mér að taka lokið af súpupottinum og setja á bólakaf í súpunni.
En kjötið, meina, hversu mikið er hægt að klúðra kjöti? Það er hægt að ofelda það.Ég er ekki viss um að það hafi verið gert í þessu tilfelli. Það leit út fyrir að vera pínu rautt í miðju, en bragðið.... bragðið var viiiðbjóðslegt. Ég er ekki einusinni viss um að þetta hafi verið nautakjöt. Ég þurfti að athuga nokkrum sinnum hvernig þetta hafði verið eldað, því það fyrsta sem mér datt í hug var að kjötið hefði verið grillað í svona 36 tíma, og svo hefði einhver tekið sprautu með blóði og sprautað inn í miðjuna til að láta líta út fyrir að það væri medium-rare.
En eftiráaðhyggja, þá grunar mig að kjötið hafi runnið út einhverntíman í byrjun árs 2008, og verið í frysti síðan þá, fengið svo að þiðna i eina viku þar til ég fékk það á diskinn minn.
Við erum að tala um að ég notaði dijon sinnepið sem er á borðinu til þess að bragðbæta kjötið til þess að koma því ofanímig.
HVER NOTAR DIJON SINNEP Á KJÖT?! Ég, þegar kjötið er myglað.
Gef grillhúsinu mínus-þrjár-stjörnur.
En í gær fórum við Vala út að borða á Scandinavian á Laugavegi 24.Það var frábært.
Djúpsteiktur camelbert og hvítlauksristaðir humarhalar í forrétt. Kjúklingaeitthvað og Surf&Turf í aðalrétt. Og svo súkkulaði og eplakökur í eftirrétt.
Þjónustan var skemmtileg.
Forrétturinn var frábær.
Aðalrétturinn var líka frábær.
Eftirrétturinn var "lala". Skv völu þá hefði alveg mátt hita frönsku súkkulaði kökuna aðeins betur. En svoleiðis á að vera borið fram volgt, ekki kalt. Eplakakan var líka "lala". Hef bæði fengið verra og betra.
Mæli með að sleppa bara eftirréttunum, og þá fer maður massa sáttur þarna út.
Gef Scandinavian "ég væri til í að koma aftur þangað og borða, og myndi mæla með staðnum" margar stjörnur.
Næst: Hoppa og skoppa út vikuna til að ná af mér matnum sem var borðaður um helgina.
02:22:15 - Monday, 01.02.10 -