Velvet Revolves around itself.

Velvet Revolver átti að koma til Ísl og spila í Egilshöll 7. júlí...
Öllum tónleikum eftir 2. júlí (5 stk í evrópu) var aflýst vegna "heilsufarsástæðana liðsmanna".
Svo skrifa finnar grein um að Velvet sé að hætta, og talsmaður Velvet segir að það sé af og frá, og að ástæða þess að hætt var við tónleikana sé að það standi til stúdíó vinna í sumar, búa til plötu.
Ok, 2 mism. afsakanir á skömmum tíma.

My theory: Léleg aðsókn.
það hefur örugglega mjög takmarkað magn af miðum selst og ekki borgað sig að standa í þessum tónleikum.
Amk heyrir maður ekki um marga sem hafa ætlað sér að fara, og röðin fyrir forsöluna hérlendis var engin.
Eina sem maður heyrir um þessa "hljómsveit" er bara í hvaða gömlu burned-out hljómsveitum þessir meðlimir VORU í. Ekkert talað um að þeir séu að senda frá sér góð og grípandi lög.

Natti - clock 02:04:58 - Friday, 10.06.05 - pencil permalink