» What did others have to say?
<Egill> 3. mgr. og 4. mgr. 10 gr. sakamálalaga nr. 88/2008: 3. Þótt þinghald sé háð í heyranda hljóði er dómara rétt að takmarka fjölda áheyrenda við þá sem rúmast á þingstað með góðu móti. Dómari getur einnig meinað þeim aðgang sem eru yngri en 15 ára eða þannig á sig komnir að návist þeirra samræmist... ekki góðri reglu við þinghald eða hætta er á að nærvera þeirra valdi því að sakborningur eða vitni skýri ekki satt frá. 4. Dómara er rétt að vísa manni úr þinghaldi ef návist hans horfir til truflunar þingfriði eða framkoma hans er óviðeigandi í orði eða verki. Ef um sakborning er að ræða, fyrirsvarsmann hans, ákæranda, verjanda eða réttargæslumann skal dómari þó að jafnaði áminna hann og gefa honum kost á að bæta ráð sitt áður en af brottvísun verður. Ákvörðun dómara um að víkja manni úr þinghaldi má framfylgja með lögregluvaldi ef með þarf. Bókað skal um brottvikningu manns ef sakborningur, fyrirsvarsmaður hans eða málflytjandi á í hlut.
[ 2010.04.30 18:33 GMT ] [ E-mail ] [ WWW ]
» What do you have to say?
| E-mail » | |||
| WWW » | |||
| Comments » | |||
|