» What did others have to say?
<Egill>
Hvar fannst þú tölur um yfir hverja var mest strikað?
Annars er ég ekki alveg sammála þeim punkti, en tek þó hjartanlega undir það sem þú segir um viðbrögð Dags og Hönnu.
Málið með útstrikanirnar er að til þess að þær hafi áhrif þá þarf meira en helmingur þeirra sem kusu listann að hafa strikað yfir frambjóðanda til þess að það hafi áhrif á röðina. Enda er lang eðlilegast að setja mörkin þar. Að mínu mati gengur ekki upp að minnihluti þeirra sem kjósi listann geti haft áhrif á röðun sem meirihluti kjósenda hans er sáttur við. Og ekki veit ég hverjum ég myndi treysta til þess að setja mörkin. Ætti 20% að vera nóg? 25%? 30%?
Ég myndi þó vilja sjá breytingu á þessum reglu á þá leið að striki yfir helmingur kjósenda yfir ákveðin frambjóðanda þá detti hann alveg af listanum, en ekki bara niður um sæti.
[ 2010.05.31 17:23 GMT ] [ E-mail ] [ WWW ]
<Egill> Nú var verið að hvísla því að mér að reglurnar séu svona eins og ég vill hafa þær í sveitastjórnarkosningum, en hitt (að detta niður um sæti í hlutfalli við yfirstrikanir) sé í alþingiskosningum. Þori ekki að fullyrða að þetta sé rétt samt. Og á sama stað er mér sagt að frambjóðandinn í þriðja sæti hjá D í Kópavogi sé þar með í stórhættu...
[ 2010.05.31 17:30 GMT ] [ E-mail ] [ WWW ]
<Natti>
Egill: Var ekki með tölur, heyrði það í einhverjum fréttum eða fréttaskýringu hverja hafði verið mest strikað yfir hjá flokkunum í Rvk.
Varðandi "regluna" um hvenær fólk dettur út eða niður á lista, þá hef ég ekki kynnt mér það í þaula, en "reynslan" mín af henni er að hún er gagnslaus.
Það sem ég er að vitna í er ekki þessi regla, heldur því hvernig frambjóðendur túlka yfirstrikanir á sjálfum (sjálfri) sér.
Það að frambjóðendur líti svo á að það sé bara verið að leggja þá í einelti og ákveði að taka yfirstrikanir ekki til sín persónulega (er að vitna í Björn Bjarnason) er ekkert annað er veruleikafirring.
Málið er, að eins og frambjóðendur vita, þá ef að 20% af kjósendum strika yfir þig, þá þýðir það ekki að 80% sé ánægður með þig. Það þýðir bara að 20% sé nógu óánægður með þig til þess að ákveða að sýna það sérstaklega með því að strika yfir þig.
Hin 80% geta verið á bilinu ánægð til neutral.
Dyggir fylgismenn flokkanna kjósa áfram sinn flokk þó það komist einhver vitleysingur inn á lista, og eru ekkert endilega að strika yfir hann. Kjósa bara.
Punkturinn sem ég er að reyna að koma á framfæri, að jafnvel þó að lítill hluti kjósanda striki yfir nafnið, þá ætti það að vera nógu skýr skilaboð til frambjóðenda að það er óánægja með þá.
Það er kannski ekki að marka nokkra einstaklinga, jafnvel nokkra tugi.
En þegar nokkur hundruð, eða þúsund einstaklingar strika yfir þig, þá er það meira en bara tilviljun.
Og það má vel gera ráð fyrir því að í hópi hinna sem strikuðu ekki yfir þig, sé örugglega helmingur eða meira sem að fylgist ekki það vel með stjórnmálum til þess að hafa neitt á móti þér.
Þessvegna ættu einstaklingar eins og t.d. Dagur, Gísli Marteinn og Sóley að taka þessi skilaboð til sín, víkja, eða taka þá ákvörðun að taka ekki að sér stjórnarstörf (formenn nefnda, bæjar eða borgarstjóri t.d.).
Það eru ekki bara reglurnar sem eiga að láta fólk detta niður. Þetta eru skilaboð til frambjóðenda að það sé óánægja með þá í hópi einstaklinga sem vill samt kjósa flokkinn. Frambjóðendur virðast bara líta framhjá því og taka það ekki til sín.
[ 2010.05.31 22:00 GMT ] [ E-mail ] [ WWW ]
<Egill>
Ok, ég skil svosem alveg hvað þú ert að fara og auðvitað eiga þeir sem fá svona miklar útstrikanir að hugsa sinn gang. En mér finndist samt sem áður fáránlegt að víkja sem kjörin fulltrúi á þessum forsendum. Þessi 80% eru allavega ekki óánægðari með fulltrúann en það að þeim fannst ekki taka því að gera lítið strik yfir nafnið hans. Vilji fjórða hvers kjósanda á ekki að vera rétthærri en hinna þriggja.
En eins og ég segi, auðvitað eiga frambjóðendur sem fá svona margar útstrikanir að hugsa sinn gang og sýna smá auðmýkt í störfum sínum eftir þetta. Það þarf að komast á nýr hugsanagangur hjá íslenskum pólitíkusum. Það eru einhverjar vísbendingar um að það sé að gerast utan stóru flokkanna fjögurra en það þarf miklu meira til.
[ 2010.06.01 18:21 GMT ] [ E-mail ] [ WWW ]
<Natti> prufa
[ 2010.07.29 10:55 GMT ] [ E-mail ] [ WWW ]
» What do you have to say?
| E-mail » | |||
| WWW » | |||
| Comments » | |||
|